Beach House: Í fullum blóma…
[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 26. maí]
Í fullum blóma
• Gæðasveitin Beach House gefur út plötuna Bloom
• Legrand og Scally á bólakafi í draumheimum sem fyrr
„Við gætum þess að láta ekkert trufla okkur. Það er ákveðinn rytmi í gangi og við göngumst bæði upp í miklum önnum, erum t.d. í mikilli vinnulotu núna við það að semja. Við viljum ekki fara fram úr okkur heldur og erum ekki að hugsa þetta um of. Við erum bara augnablik í eilífðinni.“ Þessi draumkenndu orð eru úr munni Victoriu Legrand, söngkonu Beach House, en þau féllu er greinarhöfundur ræddi við hana á síðasta ári. Tilefnið var viðtal fyrir Morgunblaðið vegna væntanlegra tónleika dúettsins á Airwaves. Legrand myndar einn helming hans en hinn helmingurinn er Alex nokkur Scally. Orð Legrand eru sem í fullkomnum samhljómi við tónlist sveitarinnar, eins og þau fljóti um í draumsenu – sem sýnd er hægt. Þau Scally og Legrand hafa enda yfir sér ókennilega áru, eru þetta systkin? Elskendur? En þau eru hvorugt, eru músíkalskt par sem á að eigin sögn í mjög svo telepatísku sambandi er kemur að því að semja tónlist. Fjórða plata þeirra, Bloom, kom út í þarsíðustu viku og pressan á plötuna allnokkur en sú er kom þar á undan, Teen Dream, var valin plata ársins 2010 af mörgum miðlinum. Meðal annars hafnaði hún í þriðja sæti í vali Morgunblaðsins á erlendri plötu ársins og sagði í umsögn: „Hljóðheimur Beach House er algerlega einstakur; Það er sorg og myrkur þarna en um leið óræð fegurð, birta og von.“
Huggandi
Hér hefur mikið verið talað um drauma og tónlist Beach House er m.a. skilgreind sem „dream pop“. Ekki að furða því að þannig nákvæmlega eru hughrifin þegar á er hlýtt. Lögin streyma áfram línulega, minna hvert á annað og platan nýja, líkt og sú síðasta, er heildarupplifun fremur en að um sé að ræða safn af mismunandi samsettum lögum. Þá er maður aldrei almennilega viss um hvort þeirra sé að syngja, raddirnar eru nánast tvíkynja og maður er ekki viss hvort um sé að ræða háa karlmannsrödd eða lága kvenmannsrödd. Hljóðgervlabundnar smíðarnar, sem eru í senn melankólískar og huggandi, minna þá á sveitir sem gerðu út frá 4AD-merkinu breska á níunda áratugnum en það var mikið kjörlendi fyrir dularfullar og dreymnar tónsmíðar. Cocteau Twins koma óneitanlega upp í hugann og jafnvel Dead Can Dance, án miðaldatilvísananna og heimstónlistarinnar. Báðar þessar sveitir voru líka að stofni til skipuð pari, karli og konu.
Spenna
Bloom var tekin upp í Texas og sá upptökustjórnandinn Chris Coady (Yeah Yeah Yeahs, Grizzly Bear, Blonde Redhead) um að snúa tökkum líkt og á síðustu plötu. Upptökur tóku sjö vikur og gerir Victoria LeGrand tilraun til að lýsa plötunni eða öllu heldur titli hennar í nýlegu viðtali við Village Voice. Titillinn, Bloom, sé að mörgu leyti lykilinn að henni.
„Við vorum að leita að orði eða orðum sem myndu lýsa því sem við erum að reyna að koma á framfæri,“ segir hún. „Bloom var orðið. Það var byggt á tilfinningu…trú á þetta orð. Ég tengi það við eitthvað órætt, að það hafi ekkert inntak einhvern veginn…ég veit ekki…það er ákveðin spenna bundin í þessa plötu og þetta orð, „bloom“ er tilraun til að fanga þá hugmynd.“ Eins og sjá má er allt í samræmi hjá Beach House, veri það í tónlistinni eða tilraunum þeirra sem búa hana til í að lýsa henni. Órætt og draumkennt svo sannarlega.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012