Tónlistardómur: Skúli Sverrisson Sería og Blonde Redhead í Gamla bíói
Ljósmynd/Arnar Eggert Thoroddsen
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 5. september, 2015
Draumflæði í tónum
Skúli Sverrisson Sería og Blonde Redhead í Gamla bíói. Miðvikudaginn 2. september, 2015.
Nú er ég búinn að vera í mánuð á Íslandi upp á dag og hef heilsað manni og öðrum en aldrei eins og á miðvikudaginn. Vinir og félagar úr íslenska tónlistarbransanum – og víðar – fylltu Gamla bíó og vel það og þetta var líkara árshátíð. Tilefnið enda ærið, ekki á hverjum degi sem boðið er upp á stórfenglega tónlist sem kemur beinustu leið úr kjarnanum og það frá tveimur tónlistarhópum. Besta tveir fyrir einn tilboð sem ég hef gengið að lengi.
Svakalegur
Skúla Sverrisson þarf vart að kynna, ferill hans er orðinn allsvakalegur hvar hann hefur unnið náið með tónlistarmönnum, erlendum sem innlendum, sem koma jöfnum höndum úr hörðustu tilraunatónlist, framúrstefnudjassi eða rokki. Yfirreiðin er tilkomumikil en þetta kvöld einbeitti hann sér að Seríu-verkefni sínu sem er bæði tónlistarhópur og plötur en tvö lofuð verk hafa komið út á hans vegum. Með Skúla léku þau Arnljótur Sigurðsson, Guðmundur Vignir Karlsson (Kippi Kaninus), Kristín Anna Valtýsdóttir (Kria Brekkan), Ólafur Björn Ólafsson (ÓBÓ) og Ólöf Arnalds. Sérstakur gestur var Amadeo Pace úr Blonde Redhead en mikil vinátta er með Skúla og þeirri sveit og var hann meðlimur í henni á upphafsárum hennar (og græjaði hingaðkomu hennar einnig).
Það er einfaldast að lýsa tónlist Skúla sem fallegri því það er hún svo sannarlega. Það er eitthvað „hreint“ við hana, hvernig hún flæddi óheft og – mér er næst að segja auðmjúk – frá hópnum sem hana flutti. Ég lygndi aftur augunum og komst í „ástand“, sveif úr líkamanum og naut núvitundarinnar sem tónlistin undirstakk svo ég noti móðins hugtak. Algerlega stórkostlegt stöff. Íslands- og Skúlavinirnir Blonde Redhead voru næst á svið. Ég velti því upp í Víðsjárþætti á dögunum að einn af kostum Blonde Redhead væri ákveðin óvissa, stundum næðu þau háflugi en það kæmi fyrir að það næðist alls ekki, eitthvað sem einkennir sanna, viðkvæma listamenn (kenning í mótun: alvöru listamenn eru alltaf viðkvæmir). Í þetta sinnið var hið fyrra uppi á teningnum. Þau tóku við kefli Skúla og félaga og rúlluðu kvöldinu upp af þvílíku fádæma öryggi að annað eins hefur ekki sést né heyrst hér lengi vel. Tríóið komst í ham og allt hreinlega small. Eitt af því sem er unaður að fylgjast með hvað Blonde Redhead varðar er sviðsframkoman. Þau Amadeo og Kazu Makino, gítarleikarar og söngvarar, líða iðulega þokkafull um sviðið og láta vel hvort að öðru í návígi, nuddandi gíturum hvort annars saman. Það er eitthvað ertandi við þessa sjón, ég segi ekki meir. En, algerlega stórkostlegt stöff einnig. Salurinn var fullkomlega upptendraður í lokin.
Vegur og vandi
Það var Mengi, listhús, hópur, útgáfa og ábyggilega eitthvað fleira sem hafði veg og vanda af þessum lofsverðu tónleikum. Mengi er til húsa að Óðinsgötu og þar fer fram mikil og tíð starfsemi þar sem framsækin og jaðarbundin list er einatt í forgrunni. Ég hef verið að fylgjast með á hliðarlínunni undanfarin ár enda fluttist ég út um það leyti er Mengi var opnað og það er hreinlega styrkjandi þegar maður sér að það er hægt að keyra svona starfsemi svo vel sé. Regluleg, vikuleg dagskrá heldur listalífinu í æfingu ef við getum sagt sem svo og hefur jafnvel þjálfað upp og leiðsagt ungu og upprennandi listafólki um leið. Er þetta allt saman vel. Á þessum ávarpslegu, ráðherralegu, nótum lýk ég pistlinum. Góðar stundir.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012