Rýnt í: Áslaugu Dungal og Iðunn Einars
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 28. janúar, 2023.
Hér sé æskuljómi
Tvö kornung tónskáld létu að sér kveða á síðasta ári með athyglisverðum skífum. Áslaug Dungal gaf út gítarplötuna Óviss á meðan Iðunn Einars gaf út hina nútímatónlistarlegu Allt er blátt.
Áslaug Dungal er ung söngkona, gítarleikari og lagahöfundur sem ég vissi ekkert um fyrr en mér barst plata hennar, Óviss , til eyrna á síðasta ári. Sex laga plata sem kallast hinu dásamlega nafni Óviss . Ég les m.a. í þetta að þetta eru fyrstu skref höfundar á útgáfu- og lagasmíðasviðinu (geri ég ráð fyrir) þannig að það er sumpart verið að feta þessa slóð hikandi og margt „óvíst“ enn. Platan og hljóðheimurinn er einkar lofandi verður að segjast. Fyrsta lagið, „Inní mér“, hljómar eins og það gæti verið af Hejira með Joni Mitchell, bergmálskennt gítarglamur og lokkandi indísöngur þar sem tilfinning trompar „lagvissu“. Lagið er og í ætt við þessa ambient-legnu handanheimstónlist sem listakonur eins og Grouper, Juliana Barwick, jafnvel okkar eigin Asalaus, eru að gera. Skældir og „unnir“ gítarar, lögin dansa um loftið í ókennilegu glitri, eru draumkennd og stemningsmyndandi. Annað lagið, „Fyrir þig“, er nákvæmlega þannig og „Einn daginn“ fylgir svipaðri forskrift. Fallegt, brotthætt og dulrænt – allt í senn.
Áslaug sagði frá því í Ólátagarði , hinum stórgóða grasrótarþætti Rásar 2, að hún hefði tekið plötuna upp í herberginu sínu og hefði einfaldlega gefið hana út. Hún ræddi lítt um texta eða einhverja dýpri merkingu í plötunni, þetta væri bara „eitthvað dót sem ég var að vinna með“. Áslaug er í LHÍ um þessar mundir og tónlistarnemar þaðan, útskrifaðir sem óútskrifaðir, hafa verið að koma fram með henni á hljómleikum.
Iðunn Einars er og LHÍ-tengd og er með BA í tónsmíðum þaðan. Allt er blátt er líkt og í tilfelli Áslaugar sex laga stuttskífa, en inniheldur rækilega „samda“ tónlist og formaða. Á Bandcamp-síðu sinni segist Iðunn koma úr klassískum bakgrunni en hafi fundið sig í poppi og Allt er blátt sé samsláttur þessa. Betri lýsingu er eiginlega ekki hægt að finna á verkinu, það er nákvæmlega þannig.
Samnemendur hennar koma nokkuð við sögu á plötunni, hin nýja kynslóð íslensks tónlistarfólks, fólk fætt í kringum 2000. Elvar Smári Júlíusson sá um hljóðupptökur og hljóðblöndun m.a. Aðrir sem komu við sögu voru Brynjar Daðason, Ísidór Jökull Bjarnason, Hafrún Birna Björnsdóttir, Móeiður Una Ingimarsdóttir, Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir og Þórey Einarsdóttir.
Tónlistin er eins og segir langt komin og tilkomumikil. Haganlega skrifaðir rafpartar renna samsíða strengjaútsetningum og barnslegri söngrödd Iðunnar. Ég heyri í Sigur Rós og Björk, Joönnu Newsom líka, en þetta eru áhrifavaldar sem lúra utan við, þetta er engan veginn eitthvert hermikrákuverk. Samantekið er þetta virkilega efnilegur frumburður frá ungu tónskáldi sem á ábyggilega eftir að láta að sér kveða á næstu árum sé vel á spöðum haldið. Sjá t.d. „Venus“, hrífandi falleg smíð sem sprettur úr nútímatónlistarheiminum, jafnvel þessum síðklassíska þar sem Jóhann Jóhannsson og Ólafur Arnalds hafa farið mikinn.
Ég talaði um þá Stirni og Oliver Devaney í síðustu viku. Vita skuluð þið, ég hefði hæglega getað hlaðið í tíu svona pistla til viðbótar, enda eftir nógu að slægjast á akri íslenskrar tónlistar nú um stundir. Það sem hefur líka breyst á undanförnum áratug, kannski áratugum, eru útgáfu- og dreifileiðir sem færa tónlistina nær okkur. Streymisveitur stytta bið og auðvelda aðgang, þetta líkan er komið til að vera, þó að sannarlega eigi eftir að leysa úr ýmsu varðandi hagkerfið í kringum það. En það er önnur grein.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012