hjaltalín múm mashup

 

Eftir alllangt ferli liggur nú endanlegur tólf platna listi með tilnefningum til Norrænu tónlistarverðlaunanna fyrir. Það er gleðilegt að geta sagt frá því að tvær íslenskar sveitir eru á meðal þeirra tilnefndu, Hjaltalín (fyrir plötuna Enter 4) og múm (fyrir plötuna Smilewound). Verðlaunin verða veitt  í febrúar í Osló, samhliða by:Larm tónlistarhátíðinni

Heildarlistinn er annars þessi:

Atlanter – Vidde (NO)
Death Hawks – Death Hawks (FI)
Hjaltalín – Enter 4 (IS)
Iceage – You’re Nothing (DK)
Jenny Hval – Innocence Is Kinky (NO)
Jenny Wilson – Demand The Impossible (SE)
Minä ja Ville Ahonen – Mia (FI)
Mona & Maria – My Sun (NO)
Múm – Smilewound (IS)
Rhye – Woman (DK)
Synd Og Skam – Lad Mig Falde Ind Til Dig / Center (DK)
The Knife – Shaking The Habitual (SE)

Norrænu tónlistarverðlaunin (Nordic Music Prize) verða veitt í fjórða sinn í ár en stofnað var til þeirra árið 2010 og var Jónsi okkar fyrsti sigurvegarinn. Sænski tilraunadjassistinn Goran Kajfeš hreppti svo verðlaunin fyrir árið 2011 og sænsku systurnar í First Aid Kit sigruðu í fyrra.

Þann 26. nóvember síðastliðinn var 25 platna íslenskur forvalslisti vegna Norrænu tónlistarverðlaunanna opinberaður. Sá listi var síðan borinn undir tæplega 100 manns sem tengjast hinum íslenska tónlistarbransa með margvíslegum hætti. Hans hlutverk var að velja áfram tíu plötur og voru þær kynntar þann 15. janúa  ásamt sambærilegum tíu platna listum frá hinum fjórum Norðurlöndunum.

Samnorræn dómnefnd setti saman tólf platna heildarlistann upp úr plötunum 50. Alþjóðleg dómnefnd sér svo um að velja lokasigurvegarann af tólf platna listanum.

virðingarfyllst,

Arnar Eggert Thoroddsen, fulltrúi Íslands í samnorrænu dómnefndinni.

Síða verðlaunanna: http://nordicmusicprize.com/
Fyrri verðlaunahafar: http://nordicmusicprize.com/pages/eng/18-previous_winners
Almennt um verðlaunin: http://nordicmusicprize.com/pages/eng/6-about

PS. Plata Hjaltalín kom út 22. nóvember 2012 en þá var búið að loka fyrir tilnefningar til verðlaunanna það árið. Hún er því tilnefnd í ár.
 

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: