Bob Dylan: Ný hljóðversplata, Tempest
[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 8. september]
Eigi siglir hann lygnan sjó
• Bob Dylan gefur út nýja hljóðversplötu á mánudaginn
• Tempest er 35. plata meistarans sem kominn er á áttræðisaldur
Af hverju höfum við svona mikla þráhyggju gagnvart Bob Dylan? Hver ákvað þetta? Þessi hugmynd um að hann sé eitthvað annað og meira en maður sem semur lög og texta. Hann sé einhvers konar tákn, heilagur maður með beintengingu við almættið og í honum kristallist einhvern veginn samviska eftirstríðsárabarnanna.
Þessi mynd okkar af honum virðist síðan vera að treystast og skýrast með árunum ef eitthvað er, m.a. vegna þess gæðaefnis sem frá honum kemur nú á efri árum. Dylan passar svo gott sem fullkomlega í hlutverk hins alsjáandi, en dularfulla, öldungs sem veit alltaf meira en nef hans nær.
Klósett
Nýjasti skammturinn í þessari ævikvöldsreið hans er Tempest, tíu laga plata þar sem tæplega fjórtán mínútna titillagið er miðlægt. Þar fjallar Dylan um örlög Titanic í 45 versum. Lag Carter-fjölskyldunnar um slysið varð Dylan innblástur en hann lætur sér ekki nægja að fjalla um stórslysið upprunalega heldur vísar hann og í mynd James Cameron frá 1997.
Dylan tók plötuna upp með hljómsveit sinni, líkt og hann hefur gert á síðustu plötum. Þessi aðferðafræði, að fara með þetta gengi (og þeir líta út eins og gengi) inn í hljóðver eftir að hafa spilað sig sundur og saman á tónleikum í marga mánuði, en Dylan er sítúrandi, hefur getið af sér mikla kjörgripi og Dylan er ekki að kroppa í eitthvað sem virkar. Love and Theft (2001) og Modern Times (2006) eru skínandi dæmi um virkni þessa, svo þéttar að vatnið kemst ekki á milli og maður finnur sterkt fyrir því að þessir menn þurfa ekki að tala mikið saman í hljóðverinu. Þessi dampur datt dálítið niður á Together Through Life (2009) en jólaplata Dylans það sama ár kom honum aftur á kúrs, algerlega magnað verk, eins skringilega og það hljómar (þið verðið bara að taka orð mín fyrir því, hér er ekki pláss til að rökræða það frekar. Vísa hins vegar í grein sem ég skrifaði í blaðið frá 6. janúar 2010).
Shakespeare
Tónlistin á Tempest fylgir svipuðum línum og allar þessar plötur. Amerísk tónlist, í sinni víðustu mynd, í forgrunni. Blús (mikið af honum), djass, rokkabillí, þjóðlagatónlist, tex-mex o.s.frv. Það er harðneskja, ofbeldi og blóð í gangi en líka ljúflegheit og sakleysi.Opnunarlagið, „Duquesne Whistle“ er í gamaldags djassstíl og lokalagið, „Roll on John,“ er blíður óður til Johns Lennons. Í viðtali við Rolling Stone viðurkennir Dylan að hann hafi ætlað að gera trúarlegri plötu en hann hafi einfaldlega ekki verið með nægilega mikið efni í það. Dylan-rýnar sumir hverjir supu hveljur við að lesa þetta og minnast umdeildra kristilegra platna Dylan frá áttunda og níunda áratugnum, Slow Train Coming, Saved og Shot of Love. En af síðustu verkum hans að dæma hefði aðkoman verið öðruvísi, kallinn er ekkert að fara að „frelsast“ úr þessu.
Í sama viðtali var Dylan spurður hvort platan væri vísun í lokaleikrit Shakespeare og þetta væri því þar með síðasta plata hans. „Síðasta leikrit Shakespeare kallast The Tempest,“ svaraði Dylan þá. „Platan mín heitir Tempest. Þetta eru tveir ólíkir titlar.“ Dylan er snjall.
2 Responses to Bob Dylan: Ný hljóðversplata, Tempest
Leave a Reply Cancel reply
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland HAM Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið Myrkfælni múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins The Beatles Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
- RPLA on Rýnt í: Kynjahalla í dægurtónlist
Safn
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012
Mikið er ég ánægður að kallinn gerði nýja plötu. Ég var mjög hræddur um að Together Through Life yrðí hans síðasta. Það hefði verið harmur eftir stórkostlega þrennuna sem á undan kom.
This totally explains why I could never understand bob dylan… He was speaking Icelandic the whole time!